Vinnan

 

 

 

 

 

 

Ég stundaði kokkanám í Svíþjóð á árunun 1982 till 1985, og hef unnið við það síðan bæði hér á Íslandi og í Svíþjóð. Bæði í mötuneytum og í veitingageiranum.

Frá opnun Hótel Arkar í Hveragerði  í júlí 1986 sá ég um kalda eldhúsið (forrétti og eftirrétti) á annrri vaktinni, þar  til ég hætti 1. september 1987.  Þá gerðist ég matráðskona á Garðyrkjuskóla Ríkisins að Reykjum í Ölfusi.   Þar var ég í  rúm 7 ár. Síðasta starf  sem ég hafði áður en   ég flutti til Svíþjóðar aftur var matráðskona í starfsmannamötuneyti   Osta-og Smjörsölunnar í Reykjavík.

Núna vinn ég   sem  matráðskona í eldhúsi  á ellihjúkrunnarheimili  hér í Svíþjóð.

Ég hef unnið hin ýmsu störf sem t. d. dagmamma, í fiski og  séð um bókhald fyrir rekstur mannsins míns. Einnig við ræstingar og í húsgagnaverksmiðju hér í Svíþjóð í byrjun áttunda áratugsins.

Ég hef reynt að endurmennta mig samfara vinnunni gegnum árin.  Stundaði nám við Fjölbrautarskólan á Suðurlandi  4 annir á Viðskiptabraut. Einnig hef ég   stundað tölvunám hjá Tölvuskóla Reykjavíkur á árunum 1989 til 1991. Nú síðast hef ég stundað fjarnám í Margmiðlun  hjá  Uppdragsutbildningen Kvalitetsdata í Malung í Svíþjóð. Mér finnst alveg  rosalega spennandi að   afla sér meiri menntunnar á tölvusviðinu. Það virðist bara vera svo, að þeim mun meira sem maður lærir þeim mun minna virðist maður kunna. Þetta er svoddan hafsjór að læra.