Fjölskylda mín

 

Minn ástkæri eiginmaður, Friðrik,  fæddur á Hjalteyri 20 febrúar 1950.

Hann þarf alltaf að vera standa í einhverju, og hefur  hugmyndir svo að það er eftitt að fylgjast með :-)

Hann hefur unnið  margvísleg störf.  Byrjaði ungur til sjós og unnið flesta verkamannavinnu, meðal annars, í fiski, á vinnuvélum, leigu-  vöru-  og rútubílsstjóri, húsgagasmíði,  fiskeldi, og húsvörður svo eitthvað sé nefnt.

Hann hefur   rekið  verktakafyrirtæki á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins. Svo sem þungavinnuvélum,  þjónusta og uppbygging við fiskeldið og þaklagnir. Núna rekur hann Pizzastað hér í Svíþjóð

Hann lærði fiskeldisfræði í Svíþjóð 1984 -1986 og las við Háskólann í Lundi um fisksjúkdóma og umhverfisfræði.

 

 

Brúðkaupsdagurinn 5. apríl 1969

 

Okkar yndislegu börn. Myndin tekin vorið 1980

Magnús Þór elsti sonur okkar fæddur á Akranesi 25. nóvember 1968. Býr í Svíþjóð og vinnur á Pizza Rock í Växjö. Samfara vinnunni  stundar hann  nám í CNA (Novell Netware 4.11) och MCP (Windows NT 4.0 Server)

Sigurður Árni fæddur á Akranesi 20 febrúar 1973. Býr  i Alvesta í Svíþjóð. Hann er trúlofaður Ann Christine Kjellberg. Hann keyrir flutningabíl hjá Skogström og Pettersons Åkeri i Alvesta. Hann er mikill áhugamaður um tölvur og situr gjarnan  við tölvuna sína þegar hann er í fríi.

 

Anna María,   eina dóttir okkar fædd á Akranesi 8. apríl 1974. Hún vinnur í Konditorí Hverabakarís og býr í Hveragerði ásamt sambýlismanni sínum Baldri Rúnarsyni. Þau eiga tvö börn, Jóna Guðrún fædd 18. mars 1994 og Árni Rúnar   fæddur 5. júlí 1995

Emil Örn, yngste sonur okkar, fæddur á Akranesi 9.maí 1977. Vinnur sem aðstoðarbakari í Hverabakarí   í Hveragerði. Hann býr í Hveragerði ásamt  sambýliskonu sinni Hörpu Björnsdóttur sem vinnur á leikskóla í Hveragerði.  Þau eiga einn son, Friðrik Örn fæddur 19. júní 1995

Okkar yndislegu barnabörn.

 

Jóna Guðrún 5 ára Árni Rúnar 4 ára Friðrik Örn 4 ára