rosebr1.gif (2167 bytes)

 

Já, já  svolítið forvitin(n) um hver ég er :-)

 

Myndin er tekin   um það leyti sem ég varð fimmtug.

Hver er ég þá?

   Jú, ég heiti Mjallhvít Guðrún. Fædd í Stykkishólmi 18. júlí 1947. Gift Friðrik Sigurðssyni og eigum við fjögur uppkomin börn  og þrjú barnabörn.  Við búum í Smálöndum í Svíþjóð. Við höfum búið hér síðan í ágúst 1995. Við bjuggum hér áður á árunum 1980 til 1986, er við fluttumst aftur til Íslands og bjuggum í Hveragerði í 9 ár eða þar til við fluttum aftur hingað út.

Ég lærði til kokks þegar ég bjó hér í Svíþjóð í fyrra skiptið. Og hef unnið við það síðan.

Í vetur  hef ég verið í fjarnámi  í margmiðlun samfara vinnunni . Mér líkar vel að hafa nóg fyrir stafni. Hér getur þú séð aðrar síður ( síða 1   síða 2 ) sem ég hef gert.  Enska verður trúlega  það næsta sem ég vil læra, er léleg í ensku. Vill gjarnan betrumbæta hana svo ég geti betur gert mér að góðu allt það upplýsingaflæði sem er að hafa á internetinu